Ársfundur og heiðrun Vorstehdeildar HRFÍ

febrúar 29, 2024 2 mínútur að lesa

"Ársfundur og heiðrun Vorstehdeildar HRFÍ var haldin á kaffihúsi Dýrheima þann 29. febrúar síðastliðinn. Stigahæstu hundar voru heiðraðir fyrir árangur sinn árið 2023 og óskum við eigendum hennar og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn"

Heiðrun deildarinnar
Kjartan Antonsson formaður deildarinnar og eigendur stigahæstu hunda deildarinnar með viðurkenningar deildarinnar og verðlaun frá Royal Canin.

Vorstehdeild HRFÍ hélt þann 29. febrúar ársfund sinn á kaffihúsi Dýrheima. Á ársfundum er farið yfir almenn fundarstörf eins og ársskýrslu þar sem fram kemur allt um starfsemi liðins árs, kosið í stjórn og ýmis málefni rædd. Á kaffihúsinu var svo hægt að næla sér í dýrindis kaffibolla, drykki og veitingar. Stigahæstu hundar voru heiðraðir og við óskum eigendum og ræktendum þeirra til hamingju með frábæran árangur og hlökkum til að fylgjast með á sýningum ársins.

Vorstehdeild HRFÍ

Vorstehdeild HRFÍ var stofnuð 2008 og ber ábyrgð á varðveislu og ræktun Vorsteh hunda í umboði stjórnar Hundaræktarfélags Ísland   (HRFÍ). Deildin heldur ýmsa viðburði fyrir meðlimi sína m.a. veiðipróf. Á heimasíðu deildarinnar má finna ýmsan fróðleik tengdan íslenska fjárhundinum -  sjá hér.

Stigahæstu hundar Ársins

Stigahæstu hundar ársins 2023 voru heiðraðir á fundinum og hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra hunda. Óskum við eigendum og ræktendum þeirra innilega til hamingju með árangurinn! 


Stigahæsti hundur í unghundaflokki var Ice Artemis Brún sem er strýhærður Vorsteh. Eigandi hans er Sölvi Bernótus Helgason.


Stigahæsti hundur í opnum flokki var Ljósufjalla Heiða en hún er líka strýhærður Vorsteh. Hún var jafnframt stigahæsti hundur deildarinnar eftir samanlagðan árangur sinn í veiðiprófum og sýningum. Eigandi hennar er Friðrik Þór Hjartarson. 

Óskum eigendum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn

Royal Canin fóður sem hentar Vorsteh hundum

Tengdar fræðslugreinar og fréttir