Stór- og smáhundadagar í Garðheimum

mars 17, 2024 1 mínútur að lesa

Stórhundadagar

Stórhundadagar voru haldnir helgina 24.-25. febrúar í Garðheimum eftir langt hlé. Í þetta sinn var kynningin haldin í nýjum og glæsilegum Garðheimum. Heiða okkar stóð vaktina og tók á móti gestum sem gátu fengið að snúa lukkuhjólinu okkar og unnið smá glaðning. Það var margt um manninn og hundarnir komu að sjálfsögðu með að kíkja á stemminguna.

Heiða ánægð með lukkuhjólið
Heiða okkar tók vel á móti gestum við básinn okkar á stórhundadögum. 

Smáhundadagar

Smáhundadagar voru svo haldnir helgina 16.-17. mars og þar stóð Heiða okkar aftur vaktina með lukkuhjólið og tók á móti bæði tví- og fjórfættum gestum. Ótrúlega skemmtilegir viðburðir þessir dagar sem haldnir eru í Garðheimum og hlökkum við til að vera með næst. Áherslan á básnum okkar báða dagana var Start of Life línan frá Royal Canin en hún tryggir hvolpunum okkar besta mögulega upphaf lífsins og er sérsniðin að þörfum hvolpanna okkar upp allt vaxtaskeið þeirra.

Gaman á smahundadögum
Heiða okkar tók vel á móti gestum við básinn okkar á smáhundadögum. 

Start of life línan, besta upphaf lífsins fyrir hvolpinn þinn